Verkefni
Hér sérðu hvað við höfum smíðað, hvert verkefnið var og hvernig við leystum það.

Glansportið
Hröð og einföld vefsíða fyrir íslenskt þjónustufyrirtæki þar sem viðskiptavinir finna strax það sem þeir leita að. Alveg sjálfvirkt bókunarkerfi tengt við Google Calendar og tölvupóst sér um tímapantanirnar frá byrjun til enda.
Verkefnið
Glansportið þrífur og bónar bíla í Hafnarfirði. Vefurinn átti að sýna strax hvað er í boði og gera fólki kleift að bóka tíma án þess að hringja.
Lausnin
Við smíðuðum fyrirtækjasíðu með bókunarkerfi sem er tengt við Google Calendar og tölvupóst. Viðskiptavinurinn velur lausan tíma á síðunni og tíminn lokast sjálfkrafa, svo ekki verður tvíbókað. Lógó, Google-prófíll og ensk útgáfa fylgdu með.
- Fyrirtækjasíða
- Lógó og einfalt vörumerki
- Bókunarkerfi
- Ensk útgáfa
- Uppsetning Google Business Profile
- Tenging við samfélagsmiðla

Boðskort
Okkar eigin vara: stafræn boðskort fyrir fermingar, brúðkaup og afmæli. Gestgjafinn býr til boðskortið sjálfur, sendir hlekkinn í SMS eða Messenger og gestirnir svara beint á síðunni. Svörin safnast í gestalista á einum stað.
Verkefnið
Boðskort er okkar eigin vara. Hugmyndin var að gera það jafn auðvelt að bjóða í veislu og að senda skilaboð, og losna við að halda utan um svör á mörgum stöðum.
Lausnin
Við smíðuðum vefapp þar sem gestgjafinn skráir sig inn, býr til boðskort og sendir hlekkinn í SMS eða Messenger. Gestirnir svara beint á síðunni og svörin safnast í einn gestalista.
- Vefapp
- Innskráning
- Svarform og gestalisti
- Tölvupóstar

Basalt Solutions
Kynningarsíða sem segir stutt frá Basalt Solutions: hverjir við erum, hvernig við vinnum og hvernig á að hafa samband. Einföld, róleg og hröð – án alls óþarfa.
Verkefnið
Basalt Solutions er félagið á bak við Vefsmiðjuna og þurfti einfalda síðu sem segir hver stendur að rekstrinum.
Lausnin
Ein róleg kynningarsíða: hverjir við erum, hvernig við vinnum og hvernig á að hafa samband. Ekkert umfram það.
- Kynningarsíða