Vefstofa · Ísland

Ný vefsíða.
Beint úr smiðjunni.

Við smíðum nútímalegar vefsíður, netverslanir og öpp fyrir íslensk fyrirtæki á sanngjörnu verði, og sjáum svo um hýsingu og viðhald.

Frá 5.990 kr. á mánuði · Ekkert stofngjald án vsk.

Fáðu ókeypis úttekt á vefnum þínum

Stutt skýrsla með tillögum, án skuldbindingar.

  • Hönnun, texti og hýsing innifalin
  • Minni breytingar innifaldar
Kynningarsíða Basalt Solutions sem Vefsmiðjan smíðaði

Verð

Kynningarsíða

Ein öflug síða sem kynnir reksturinn

5.990 kr./mán.

  • Hönnun og smíði
  • Textaskrif
  • Hýsing og SSL
  • Öryggisuppfærslur og afrit
  • Minni breytingar, allt að 30 mín. á mánuði

Vinsælast

Fyrirtækjasíða

Allt að 5 síður, þjónusta og efni

12.990 kr./mán.

  • Allt í kynningarsíðu
  • Allt að 5 síður
  • Minni breytingar, allt að 1 klst. á mánuði

Netverslun

Vörur, karfa og greiðslur

23.990 kr./mán.

  • Allt í fyrirtækjasíðu
  • Stjórnborð fyrir vörur og pantanir
  • Allt að 100 vörur
  • Karfa og tenging við greiðslugátt
  • Minni breytingar, allt að 1 klst. á mánuði

Stærri verslanir eru verðlagðar eftir samkomulagi.

Öll verð eru án vsk. Binditími er 6 mánuðir, 12 mánuðir fyrir netverslun, síðan uppsegjanlegt með eins mánaðar fyrirvara. Skilmálar

Bóka frítt spjall

Verkefni

Forsíða vefsíðu Glansportsins, smíðuð af Vefsmiðjunni

glansportid.is

Glansportið

Hröð og einföld vefsíða fyrir íslenskt þjónustufyrirtæki þar sem viðskiptavinir finna strax það sem þeir leita að. Alveg sjálfvirkt bókunarkerfi tengt við Google Calendar og tölvupóst sér um tímapantanirnar frá byrjun til enda.

  • Fyrirtækjasíða
  • Lógó og einfalt vörumerki
  • Bókunarkerfi
  • Ensk útgáfa
  • Uppsetning Google Business Profile
  • Tenging við samfélagsmiðla
Skoða síðuna
Forsíða Boðskort.com, stafrænna boðskorta með svarformi, smíðuð af Vefsmiðjunni

bodskort.com

Boðskort

Okkar eigin vara: stafræn boðskort fyrir fermingar, brúðkaup og afmæli. Gestgjafinn býr til boðskortið sjálfur, sendir hlekkinn í SMS eða Messenger og gestirnir svara beint á síðunni. Svörin safnast í gestalista á einum stað.

  • Vefapp
  • Innskráning
  • Svarform og gestalisti
  • Tölvupóstar
Skoða síðuna

Viðbætur

Meira en bara vefsíða

Bættu við því sem reksturinn þarf. Öll verð án vsk.

GERVIGREIND

NÝTT

Spjallbox

Spjallmenni á vefnum þínum sem svarar spurningum viðskiptavina á íslensku allan sólarhringinn, út frá upplýsingunum á vefnum, og sendir þér fyrirspurnir sem það getur ekki svarað.

4.990 kr./mán.

VEFMÆLINGAR

NÝTT

Mánaðarskýrsla

Í byrjun hvers mánaðar færðu stutta skýrslu á mannamáli: hve margir komu, hvaðan, hvað þeir skoðuðu og hve margar fyrirspurnir bárust, ásamt einni tillögu að úrbót.

2.990 kr./mán.

SkýrslaSýnishorn
Heimsóknir
412
Fyrirspurnir
9
Úr síma
68%

SJÁLFSAFGREIÐSLA

NÝTT

Stjórnborð

Skráðu þig inn og breyttu sjálfur textum, myndum og verði á vefnum þínum, þegar þér hentar. Innifalið í netverslun.

3.990 kr./mán.

Lógó og einfalt vörumerki

9.990 kr. einu sinni

Bókunarkerfi

9.990 kr. einu sinni

Ensk útgáfa

9.990 kr. einu sinni

Uppsetning Google Business Profile

4.990 kr. einu sinni

Tenging við samfélagsmiðla

2.990 kr. einu sinni

Bóka frítt spjall →

Frítt og án skuldbindingar

Bókaðu 15 mín. spjall

Fjarfundur eða við hringjum í þig. Við förum yfir hvað þú þarft og hvaða pakki hentar, án skuldbindingar.

hello@vefsmidjan.com
Hvernig viltu spjalla?
Dagur
Tími

Við staðfestum tímann með tölvupósti innan tveggja virkra daga.

Algengar spurningar

Hvað tekur langan tíma?

Það fer eftir umfangi síðunnar og hversu fljótt efni og myndir berast. Í spjallinu förum við yfir verkið og þú færð raunhæfa tímaáætlun áður en þú skuldbindur þig.

Þarf ég að vera með tilbúinn texta og myndir?

Nei. Þú segir okkur frá rekstrinum og við skrifum textann fyrir þig. Ef þú átt myndir notum við þær, annars finnum við lausn saman.

Þarf ég að eiga lén?

Nei. Ef þú átt lén tengjum við síðuna við það. Annars aðstoðum við þig við að velja og skrá nýtt lén, sem er þá skráð á þig eða fyrirtækið þitt.

Hvað er innifalið í mánaðargjaldinu?

Hönnun, smíði og textaskrif, ásamt hýsingu, SSL skírteini, öryggisuppfærslum og afritum. Minni breytingar, eins og að uppfæra texta, myndir, verð eða opnunartíma, eru líka innifaldar: allt að 30 mín. á mánuði fyrir kynningarsíðu og allt að 1 klst. fyrir fyrirtækjasíðu og netverslun. Stærri verk, eins og nýjar síður, ný virkni eða endurhönnun, eru verðlögð sérstaklega og þú samþykkir verðið áður en vinnan hefst.

Virkar síðan vel í síma?

Já. Allar síður eru hannaðar fyrir síma, spjaldtölvu og tölvu, og við prófum þær á öllum skjástærðum áður en þær fara í loftið.

Eru einhver önnur gjöld?

Nei, nema viðbætur sem þú velur, og þær eru alltaf verðlagðar fyrirfram. Þjónustur þriðja aðila, eins og greiðslugáttir (t.d. Teya), greiðir þú beint til viðkomandi aðila.

Hvað ef ég er ekki sáttur við útlitið?

Þú færð drög til yfirferðar áður en síðan fer í loftið, og tvær umferðir af breytingum eru innifaldar. Markmiðið er að þú sért ánægður með útkomuna.