Vefsíður eru seldar í mánaðaráskrift án stofngjalds. Öll verð eru án vsk. nema annað sé tekið fram.
Skilmálarnir gilda um alla þjónustu Vefsmiðjunnar og teljast samþykktir þegar viðskiptavinur samþykkir tilboð skriflega, t.d. með tölvupósti. Sá sem samþykkir staðfestir að hann hafi heimild til að skuldbinda viðskiptavininn. Ef tilboð og skilmálar stangast á gildir tilboðið.
Binditími er 6 mánuðir fyrir kynningarsíðu og fyrirtækjasíðu, 12 mánuðir fyrir netverslun og gildir frá því að síðan fer í loftið, nema um annað sé samið í tilboði. Eftir það er áskriftin uppsegjanleg með eins mánaðar fyrirvara. Uppsögn skal vera skrifleg, t.d. með tölvupósti. Segi viðskiptavinur upp á binditíma greiðir hann mánaðargjöld út binditímann.
Hætti viðskiptavinur við eftir að hafa samþykkt tilboð en áður en síðan fer í loftið greiðir hann fyrir þá vinnu sem þegar hefur verið unnin, samkvæmt yfirliti frá Vefsmiðjunni, þó aldrei meira en sem nemur mánaðargjöldum binditímans.
Mánaðargjald er innheimt fyrirfram fyrir hvern mánuð, frá því að síðan fer í loftið. Gjalddagi er útgáfudagur reiknings og eindagi 14 dögum síðar. Sé reikningur ekki greiddur á eindaga reiknast dráttarvextir frá gjalddaga samkvæmt lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Sé reikningur ógreiddur 30 dögum eftir eindaga getur Vefsmiðjan tekið síðuna úr loftinu þar til greitt hefur verið, að undangenginni skriflegri viðvörun. Greiðsluskylda helst á meðan.
Mánaðargjald breytist ekki á binditíma. Eftir það getur Vefsmiðjan breytt verði með þriggja mánaða skriflegum fyrirvara og getur viðskiptavinur þá sagt áskriftinni upp frá þeim degi sem breytingin tekur gildi.
Hýsing, SSL, öryggisuppfærslur, afrit og minni breytingar upp að innifaldum tíma: 30 mín. á mánuði fyrir kynningarsíðu og 1 klst. fyrir fyrirtækjasíðu og netverslun. Ónotaður tími flyst ekki á milli mánaða.
Breytingar umfram innifalinn tíma og stærri verkefni, eins og nýjar síður, ný virkni, endurhönnun og árstíðabundnar herferðir, eru verðlögð sérstaklega. Viðskiptavinur fær alltaf verð fyrirfram og vinna hefst ekki fyrr en hann hefur samþykkt það.
Viðbætur eru ýmist greiddar með eingreiðslu eða mánaðargjaldi, samkvæmt verðskrá. Mánaðarlegar viðbætur má segja upp með eins mánaðar fyrirvara.
Gjöld fyrir þjónustu þriðja aðila, t.d. greiðslugáttir eða lén, greiðir viðskiptavinur beint til viðkomandi aðila. Vefsmiðjan ber ekki ábyrgð á þjónustu, bilunum eða breytingum hjá þriðja aðila.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á því að hann hafi rétt til að nota myndir, texta og annað efni sem hann afhendir. Hann afhendir efni og veitir aðgang að þeim kerfum sem tengja á við vefinn innan hæfilegs tíma. Tafir sem af því stafa eru ekki á ábyrgð Vefsmiðjunnar.
Þegar vefurinn sækir upplýsingar úr kerfum viðskiptavinar, t.d. verð og lagerstöðu úr bókhalds- eða birgðakerfi, birtast þær eins og þær eru skráðar þar. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að þær séu réttar.
Hönnun, kóði og hugbúnaður vefsins eru eign Vefsmiðjunnar og fylgja ekki við lok áskriftar. Efni og gögn viðskiptavinar, svo sem textar og myndir sem hann afhendir, vöruskrá, viðskiptavinaskrá og pantanasaga, eru eign hans. Lén er skráð á viðskiptavin og helst í hans eigu.
Þegar áskrift lýkur helst vefurinn opinn í allt að 30 daga án endurgjalds svo viðskiptavinur geti flutt sig annað. Óski hann eftir lengri tíma greiðist mánaðargjald áfram fyrir hvern byrjaðan mánuð. Á þeim tíma afhendir Vefsmiðjan gögn viðskiptavinar á algengu skráarsniði sé þess óskað. Að því loknu er vefurinn tekinn úr loftinu og honum eytt.
Vefsmiðjan leitast við að halda vefnum aðgengilegum allan sólarhringinn en ábyrgist ekki samfelldan uppitíma. Vefsmiðjan ber ekki ábyrgð á óbeinu eða afleiddu tjóni, svo sem töpuðum viðskiptum eða hagnaði. Bótaábyrgð Vefsmiðjunnar takmarkast við þá fjárhæð sem viðskiptavinur hefur greitt fyrir þjónustuna síðustu 12 mánuði. Takmörkunin á ekki við um tjón sem valdið er af ásetningi eða stórfelldu gáleysi.
Þegar Vefsmiðjan vinnur persónuupplýsingar fyrir hönd viðskiptavinar, t.d. um kaupendur í netverslun eða bókanir, er viðskiptavinur ábyrgðaraðili og Vefsmiðjan vinnsluaðili samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Aðilar gera vinnslusamning áður en vinnslan hefst.
Vefsmiðjan getur uppfært skilmálana og tilkynnir viðskiptavinum um verulegar breytingar með fyrirvara.
Um skilmálana gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur sem ekki tekst að leysa með samkomulagi skal reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Vefsmiðjan er rekin af Basalt Solutions ehf., kt. 621026-1350 · hello@vefsmidjan.com
Síðast uppfært: 17. nóvember 2026